Um S.Þ. Stúdentshúfur



S.Þ. Stúdentshúfur var stofnað af okkur, þremur drengjum, sem útskrifuðumst úr Kvennaskólanum í Reykjavík árið 2007.

Sem nýstúdentum þá blöskraði okkur hversu dýrt það væri að útskrifast í heild sinni og fengum þá hugmynd að selja stúdentshúfur á talsvert betri kjörum en þekkst hefur hérlendis.

S.Þ. Stúdentshúfur var því stofnað árið 2008. Í fyrstu var þetta einungis tilraunaverkefni en sökum mikillar eftirspurnar þá hefur það gert okkur kleyft að halda áfram að selja húfur. Við höfum nú selt húfur fyrir átta útskriftarhópa og erum engan veginn hættir. Eitthvað má sjá af myndum af húfunum okkar, í myndaalbúminu á síðunni og samanburð á húfu samkeppnisaðilans hér.

Vorið 2012 höldum við ótrauðir áfam að bæta þjónustuna og heimsækjum alla skóla á landinu.. Húfurnar fást nú í tíu stærðum, þ.e.a.s. 52 cm til og með 61 cm. Allar spurningar eru velkomnar á tölvupóstinn okkar
 eða í síma 555-7600.

Með kveðju,
Sigþór Steinn Ólafsson
Steinar Atli Skarphéðinsson
Þorgils Helgason

Vafraðu um

S.Þ. Stúdentshúfur

Staðsetning:

Glæsibæ

Heimasími:

555-7600

Kennitala:

510308-1310

Bankanúmer:

0323-26-010308


Dalía býður viðskiptavinum S.Þ.
10% afslátt af nellikum og
20% afslátt af borðskreytingum

S.Þ. Stúdentshúfur | Glæsibæ, 104 Reykjavík | Sími: 555-7600 | studentshufur@studentshufur.is